Kverið Bréf, áeggjanir og hugleiðingar eftir Ólaf Guðstein komið í forsölu

Góðan og Guðs blessaðan daginn.

Ég hefi verið að dunda mér við, af og til, að setja saman texta, skáldaða texta, sem margir hverjir eru vart húsum hæfir. Engu að síður hefi ég ákveðið að leiða marga þessara texta saman í kver eitt sem ég gaf nafnið „Bréf, áeggjanir og hugleiðingar um lífsbrandarann“. Téð kver á að koma út undir lok mars eða byrjun apríl og verður fyrst um sinn einvörðungu hægt að festa kaup á því í gegnum netið. Nú langar mig að bjóða þér, hafir þú löngun til, að festa kaup á því fyrirfram. Það sem gera þarf er eftirfarandi:

millifæra 1900 krónur á eftirfarandi reikning: 0301-26-061275 hjá Arionbanka (kennitalan er  0612755769 og eigandi reiknings Ólafur Guðsteinn Kristjánsson). Í upphæðinni er fólgið kverið sem og sendingarkostnaður. Að þessu loknu er ráðlegt að  senda línu á olafurgudsteinn@gmail.com þar sem tekið er fram að viðkomandi hafi millifært fyrir eitt eða fleiri eintök. Þar að auki er nauðsynlegt að taka fram hvert kverið skal vera sent.

Í fylgiskjali má svo lesa meðmæli í pdf-skjali málsmetandi aðila sem máski segja sitthvað um hvers eðlis kverið er.

Auglýsing fyrir kverið

-Vilji fólk fremur millifæra á þýskan reikning bý ég yfir slíkum einnig en fólk þyrfti þá að fara þess á leit við mig.

-Allar innsláttarvillur í auglýsingunni eru á mína ábyrgð. Ég er stundum bjöllusauður hvað yfirlestur varðar. En kverið verður prófarkarlesið og fínt.

Með áeggjandi kveðjum,

Færðu inn athugasemd